SKÖPUM SAMAN MÓMENT
Við erum stoltar af því að leggja okkur fram fyrir ykkar tilefni og saman minnkum við umhverfissporin. Með fjölbreyttu úrvali af stærðum, sniðum og mynstrum getur hver og ein fundið sinn eigin persónulega stíl – eða nýtt tækifærið til að fara út fyrir þægindarhringinn.
OKKAR HUGSJÓN
Markmið Meðvitund Studio er að auðvelda þér aðgengi að hágæða hönnunarvörum sem vekja eftirtekt og bjóða upp á fjölbreytt úrval flíka. Við leggjum áherslu á hringrásarkerfi þar sem gæði og ending skipta öllu máli, og þar sem sjálfbærni er í forgrunni hjá hönnuðunum.
Umhverfið og framtíðin skipta okkur miklu máli, og þetta er okkar framlag til að minnka þau umhverfisáhrif sem tíska hefur á náttúruna – sú hugsjón endurspeglast í okkar daglega rekstri.

FINNDU ÞÍNA RÉTTU STÆRÐ!
Ein stærð passar ekki öllum, en sumar flíkur henta betur mismunandi líkamsbyggingum. Til að tryggja bestu upplifunina, mælum við með að þú veljir rétta stærð fyrir þig.
VILTU ÞRÓA ÞINN STÍL Á HAGKVÆMAN OG UMHVERFISVÆNAN MÁTA?
Hvort sem þú leitar að glamúr, dramatík, litadýrð eða stílhreinu útliti, bjóðum við upp á einstakar hönnunarflíkur og fylgihluti fyrir hvert tilefni. Með okkur færðu frelsi til að þróa þinn persónulega stíl á hagkvæman og umhverfisvænan máta.
ÉG ER AÐ LEIGJA FYRIR...

STINE GOYA
Litrík og leikandi skandinavísk tískuhönnun.
Danska merkið Stine Goya hefur umbreytt skandinavískri fatahönnun síðan 2006 með áherslu á djörf form, áberandi mynstur og mikla litadýrð sem endurspeglar gleðina sem Kaupmannahöfn hefur upp á að bjóða. Hönnunin er leikandi, litrík og kvenleg, með grafískum munstrum sem sækja innblástur úr listum og náttúru. Gæði og umhverfismál eru í forgrunni, með sjálfbæra nálgun í efnisvali og framleiðsluferlum. Uppgötvaðu djarfan og hugmyndaríkan heim Stine Goya, hannaðan til að styrkja og hvetja konur í gegnum einstakan stíl sem blandar saman klassískum og nútímalegum skandinavískum áhrifum.

GANNI
Sjálfbær skandinavísk hönnun með einstakan stíl.
GANNI er danskt tískuvörumerki sem hófst með áherslu á cashmere vefnað en hefur þróast í alþjóðlegt tákn fyrir skandinavískan stíl. Merkið var stofnað um aldarmótin af Frans Truelsen og hafa Ditte og Nicolaj Reffstrup stýrt því frá 2009, þar sem þau hafa umbreytt GANNI í það sem við þekkjum í dag. GANNI leggur áherslu á sjálfbæra framleiðslu og skemmtilega hönnun sem eflir sjálfstraust og einstaklingsbundinn stíl.
Uppgötvaðu heim GANNI, þar sem sjálfbærni mætir leikandi tísku sem hvetur þig til að tjá þinn einstaka stíl.

ROTATE
Djörf og tímalaus skandinavísk hönnun með sjálfbærni að leiðarljósi.
Rotate er danskt undirmerki frá Birger Christensen, stofnað árið 2016 í samstarfi við áhrifavaldana og stílistana Jeanette Madsen og Þóru Valdimarsdóttur.
Hönnun þeirra er innblásin af því sem þær dreyma um að eiga í eigin fataskáp, með áherslu á tímalausa en oft djörfa hönnun. Umhverfismál eru þeim ofarlega í huga, sem kemur fram í vandaðri efnisnotkun og aukinni áherslu á sjálfbæran textíl. Uppgötvaðu Rotate, þar sem skandinavísk fágun mætir hugmyndaríkri og sjálfbærri hönnun.
innifalin í leiguverði