Fara í vöruupplýsingar
1 af 4

Stine Goya

Jasmine Freedom Flower Grapefruit

Jasmine Freedom Flower Grapefruit

Verð frá 8.000 kr |  47.999 kr heildsöluverð

    Kjóll í stærð MEDIUM og LARGE

    Stine Goya sækir hér innblástur í verk bandaríska listamannsins Kerry James Marshall með litarmilt en bjart samspil á milli ljósbleiks bakrunns og vanilu tónuðum blómum sem eru ofin í vandað organza efni sem er þekkt fyrir léttleika sinn. Hér fær bæði form og mynstur að njóta sín. 

    Jasmine er eitt þekktasta snið úr smiðju Stine Goya og kemur í léttu efni sem fellur fallega niður að hnjám og er með síðum, rykktum púffermum með stroffi sem setja punktinn yfir i-ið. Kjóllinn er með hátt v-hálsmál sem hægt er að taka saman og hefur vasa til hliðana. Þennan fjölhæfa kjól er auðvelt að klæða upp og niður.

    Innra efni inniheldur EcoVero™ viskós sem er einstaklega mjúkt viðkomu og er unnið á umhverfisvænan hátt til að minnka kolefnisspor.  

    Venjuleg stærð með víðu sniði sem hentar vel mismunandi líkamsvexti

    Textíl lýsing

    96% endurunnið pólýester, 4% elastín

    Sjálfbær textíll

    Vörur búnar til úr hágæða sjálfbærum efnum. Slíkar vörur notast ekki við dýraafurðir, eru a.m.k. úr 50% endurunnu eða lífrænt ræktuðu efni og eru framleiddar við góðar aðstæður þar sem mengun, eiturefni og vatnsnotkun er í lágmarki.

    Þrif & Umhirða

    Ef fatnaður krumpast í flutningi er mælt með að gufustrauja.
    Við sjáum um hreinsun eftir notkun til að tryggja að vara sé tilbúin fyrir næsta notanda.

    Valfrjálst tryggingargjald & ábyrgð

    Tryggingargjald er valkvætt gjald (1.250kr) sem tryggir þig fyrir minniháttar skemmdum og blettum sem kunna að verða á vöru.

    Mælt er með að lesa leiguskilmála neðst á síðu okkar til að koma í veg fyrir óþarfa áhyggjur.

    Sending

    Sendum á áfangastaði DROPP um land allt og bjóðum upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu

    Endursending er innifalin

    Venjulegt verð 8.000 ISK
    Venjulegt verð Söluverð 8.000 ISK
    Útsala Uppselt
    Byrjunarverð m. VSK. Sendingarkostnaður og afslættir reiknast við kassa.
    Stærð
    Dagar
    Tryggingagjald
    Skoða allar upplýsingar